Limbó - Fyrstu sporin
…traðkað í margtroðinni slóð
Hljómsveitina Limbó eða kannski réttara sagt söngsveitina Limbó skipuðu þeir félagar Atli Geir Jóhannesson, Guðjón Karl Reynisson og Helgi Indriðason. Þeir kynntust á Ísafirði þar sem þeir leiku knattspyrnu við góðan orðstír með ÍBÍ sumrin 1983 til 1985.
Platan Fyrstu sporin ..traðkað í margtroðinni slóð kom út síðla árs 1991. Upptökur fóru fram í Stúdío Stemmu, hljóðveri sem Sigurður Rúnar Jónsson (Diddi fiðla) rak vestur á Seltjarnarnesi. Platan innihélt 10 lög sem flest eru frumsamin.