Sorgir kisu
-
Lag: Helgi Indriðason
Ljóð: Jóhannes úr Kötlum -
SORGIR KISU
Kolsvört læða, lipur veiðikló
Labbar með mér útum grund og mó
Elsku litli unginn hennar dó
Svo oft er torvelt börnin sín að geyma
Hún er friðlaus, finnur enga ró
flýr hún skelkuð tóma bólið heimaÓ, hve loppan hans var fim og fín
Fallega hann sperrti eyrun sín
Allt hans líf var leikur saklaust grín
Svo létt og kátt og flullt af skrítunum vonum
Vertu róleg veslings kisa mín
Við skulum bæði reyna að gleyma honumKis, kis, kis mig hissa horfti á
Og hennar sára eymdarlega mjá
Hvelfist upp í himinhvolfin blá
Hvað má vorum dýpsta trega eyða
Kannski er barn þitt góðum guði hjá
Gullfugl eða silfurmús að veiða
Höfundur: Jóhannes úr Kötlum -
Söngur / Kassagítar: Atli Geir
Bassi / Hljómborð: Sigurður Rúnar Jónsson
Saxafón: Einar Bragi -
Upptökum var nánast lokið en það átti eftir að syngja inn þetta lag. Ég var sá eini sem átti heimangengt þann dag. Helgi fyrir norðan og Gaui önnum kafinn við önnur störf. Ég mætti seinnipartinn og sé fljótt að upptökumaðurinn er eilítið við skál. Hann var að syrgja vin sinn, þekktan tónlistarmann, sem lést um þessar mundir. Ég sagði að það væri ekkert mál ég kæmi bara síðar þegar betur stæði á. Hann tók það ekki í mál og heimtaði að við kláruðum þetta. Við stilltum upp hljóðnema inní upptökusalnum og ég tók til við að syngja og það var alveg sama hvernig ég söng - alltaf sagði hann: “Stórkostleg!“
Eftir á að hyggja er ég ekki alveg viss um þá einkunn stjórans, en hvað með það.
- Atli Geir