Jón Kristófer kadett
-
Lag: Atli Geir Jóhannesson
Ljóð: Steinn Steinarr -
ÞEGAR JÓN KRISTÓFER SIGURÐSSON LÉT ÚR HÖFN, STÓÐ HERINN Á BRYGGJUNNI OG SÖNG
Jón Kristófer, kadett í Hernum!
í kvöld verður samkoma háð,
og Lautenant Valgarður vitnar
um veginn að Drottins náð.
Og svo verður sungið og spilað
á sítar og mandólín tvö.
Ó, komdu og höndlaðu Herrann,
það hefst klukkan rúmlega sjö.Vér hittum þig ungan að aldri
og útnefndum Guði þitt líf.
Til velferðar skyldir þú vinna
og verða hins bágstadda hlíf.
Það fékk á vor fátæku hjörtu
og færði oss huggun í sál
að hlusta á þitt Hallelúja
og hugljúfa bænarmál.En syndin er lævís og lipur
og lætur ei standa á sér.
Hún situr um mannanna sálir
og sigur af hólmi hún ber.
Þú hneigðist að dufli og daðri
og drakkst eins og voðalegt svín.
Og hvar er nú auðmýkt þíns hjarta
og hvar er nú vígsla þín?
Svo mikill er illskunnar máttur,
sem mannshjartað ríður á slig,
að undir sig óðara lagði
hann annan eins hermann og þig.
Og síst má það undrum sæta,
þótt sorg vor sé ströng og hörð,er
fargast svo félegur sauður
úr Frelsarans voluðu hjörð.
Og ei má í orðum lýsa,
hve angrið í sál vorri brann,
er fullan léstu þig fleka
á fragtskipið Mary Ann.
Vér getum ei hönd rétt til hjálpar
þótt hendi þig fjörtjón og grand.
Þú siglir í Farezonen
með synd þína og Contra Bande.Jón Kristófer, kadett í Hernum,
ó, kannske þú bjargist samt,
og tæmir í botn þinn bikar,
þótt bragðið sé furðu rammt.
Ó, kannske vér eygjum þann ávöxt,
sem iðrun þíns hjarta bar,
og heyrum þitt Hallelúja
eins hreint og það forðum var.Vér biðjum og vonum og bíðum
í barnslegri einfeldni og trú,
að aftur þið fáið að finnast
Frelsari heimsins og þú.
Enn getur þín sál kannske sigrað
og syndanna ok af sér lagt,
því Guð er svo mikill og góður,
eins og General Booth hefur sagt.Jón Kristófer, kadett í Hernum!
í kvöld verður samkoma háð,
og Lautenant Valgarður vitnar
um veginn að Drottins náð.
Og svo verður sungið og spilað
á sítar og mandólín tvö.
Ó, komdu og höndlaðu Herrann,það hefst klukkan rúmlega sjö.
Höfundur: Steinn Steinarr -
Kassagítar: Atli Geir
Mandólín: Magnús Einarsson
Harmónikka: Sigurður Rúnar Jónsson
Gjallarhorn: Ólafur Ástgeirsson
Einsöngur: Guðjón Karl og Atli Geir
Kór Hjálpræðishersins:
Ólafur Skúli Indriðason, Oddgeir Eysteinsson, Ólafur Ásgeirsson, Guðjón Karl Reynisson, Atli Geir, Gunna, Ólöf, Ólina og Alla -
Já lagið ætti í raun að heita Þegar Jón Kristófer Sigurðsson lét úr höfn, stóð herinn á bryggjunni og söng
- Atli Geir