Ó, ljúfa veröld
-
Lag: Atli Geir Jóhannesson
Ljóð: Vilmundur Gylfason -
Ó, LJÚFA VERÖLD
Ó ljúfa veröld veistu það
að vindar lífsins blása að
og börnin litlu bjóða góðar nætur.
Veistu meira veröld mín
að vonin hverfur inn til þín
en fyrir utan ungur maður grætur.Og hverfur allt sem eitt sinn var
og enginn veit hvað nú er þar
ég hef grátið gæfu mína þangað.
Því horfinn er ég heim til mín
og hugsa gjarnan vel til þín
eitt sinn hefur troðinn gróður angað.Í leit að því sem liðið er
þá lifnar dauðinn fyrir mér
í dögun þá er dagur minn að falla.
En ó hve mig langar að líkjast því
sem lifir og deyr- en vaknar á nýí eyðimörk lífsins er angandi
blómstur að kalla
Höfundur: Vilmundur Gylfason -
Söngur / Bakraddir: Guðjón Karl Reynisson
Kassagítar / Rafmangsgítar: Atli Geir
Söngur / Bakraddir: Eva Ásrún Albertsdóttir
Trommur: Rafn Jónsson
Bassi: Magnús Einarsson
Píanó: Jón Ólafsson -
Faðir minn, Jóhannes Jensson, lést í upphafi árs 1988 og lét eftir sig talsvert safn bóka. Þar á meðal var ljóðabók eftir Vilmund Gylfason sem innihélt ljóðið Ó, ljúfa veröld. Ég samdi lagið þetta vorið 1988.
- Atli Geir