Og það var vor
-
Lag: Viðar Eðvarðsson
Texti: Helga Indriðason og Viðar -
OG ÞAÐ VAR VOR
Og það var vor
og vindurinn, já vindurinn í trjánum
Áfram ótal spor
ég arkaði, ég arkaði með sjánumÞað er sem blærinn blíði
beri orðin þín
Yfir lönd og lýði
langan veg til mínOg það var þrá
Svo hvíslandi, svo hvíslandi í blænum
Bylgjan hæg og blá
svo blikandi, svo blikandi á sænumVorið vetur hrekur
Vænkast hagur grár
Vorið kemur – vekur
vonir, drauma og þrárOg það fór ást
Um óteljandi, óteljandi hjörtu
Og elskendur sem sjást
í vornóttinni, vornóttinni björtu -
Söngur / Bakraddir: Ólafur Ástgeirsson
Kassagítar / Rafmagnsgítar / Bakraddir: Atli Geir
Bakraddir: Guðjón Karl Reynisson
Trommur: Rafn Jónsson
Bassi: Magnús Einarsson
Píanó: Jón Ólafsson
Saxafónn: Einar Bragi -
Þegar geisladiskurinn kom til landsins - þarna var jú að hefjast gullöld geisladisksins - þá kom í ljós, okkur til mikillar skelfingar, að það var bara þögn fyrstu mínútuna á disknum. Nú voru góð ráð dýr. Við nenntum ekki að fara í einhver málaferli við framleiðandann í Bretlandi og létum þess í stað fylgja með disknum miða sem á stóð:
» NOTA BENE «
Við biðjumst velvirðingar á því að
af óviðráðanlegum orsökum
þá hefst
GEISLADISKURINN
á mínútu þögn til minningar um
FORNA FRÆGÐ & GLÆSTA DRAUMA
— LIMBÓ
Þetta er lag sem við Helgi heyrðum fyrst Viðar flytja í góðra vina hópi í gleðskap í Hlíðunum. Síðar áttum við eftir að heyra það oftar og jafnvel sjálfir að spreyta okkur á því. Vandamálið var að við vorum kannski ekki alveg vissir um laglínu, hljóma og texta en mundum þetta þó í stórum dráttum. Viðar var þegar hér var komið við sögu í framhaldsnámi í barnalækningum í Bandaríkjunum og þetta var fyrir daga alnetsins þannig að ekki var hægt um vik að fletta uppí höfundinum.
Ég er enn þann dag í dag, 35 árum síðar enn að velta því fyrir mér hvort við höfum gert laginu nógu góð skil, en só-bí-it.
- Atli Geir