-
Lag: Atli Geir Jóhannesson
Ljóð: Steinn Steinarr -
ÁSTIN OG DAUÐINN
Að elska er að deyja þeim dauða
sem duftinu heitast ann
Að deyja er að elska hið auða
sem enginn lifandi fannÍ unglingsins ástarloga
og öldungsins feigðargrun
er sáðkorn af sama toga
með samskonar tilætlunÞótt hjartað ei hamingju fyndi
hún hlotnast því eitthvert sinn
Því dauðinn er ást þín og yndi
og ástin er dauði þinn
Höfundur: Steinn Steinarr -
Söngur: Guðjón Karl Reynisson
Söngur: Eva Ásrún Albertsdóttir
Kassagítar / Hljómborð: Atli Geir
Bassi: Magnús Einarsson
Strengir: Sigurður Rúnar Jónsson
Þverflauta: Einar Bragi -
Description text goes here