-
Lag: Skoskt þjóðlag
Texti: Helgi Indriðason -
HEIMA
Þegar vor fór með sjó
baug á fingur þér dró
og bað þig að eilífu að geyma
Þér ég hjarta mitt gat
þann dag við yzta haf
og við leiddumst um fjöruna heimaSvo leið dagur og nótt
Sem í draumi og fljótt
Er dagaði hélt ég frá landi
Hve djúp var vor hryggð
og hve dýr var okkar tryggð
þann dag niður í fjörunnar sandiÉg fer til sjós en þú situr í landi
Og syngur börnunum drauma
Ef ég ferst viltu leita og finna mína gröf
Og flytja í brekkuna heimaÞú mig lifandi átt
Og mig dáinn þú mátt
eiga og láta þig dreyma
Þegar vorar á nýþú veist ég aftur sný
og þín vitja í brekkuna heimaÉg bið – Ekki þjást því minn draumur og ást
mun að eilífu um fjöruna sveima
Þótt himinn og haf eigi hjartað sem ég gaf
Og hringinn í fjörunni heima -
Söngur: Guðjón Karl Reynisson
Kassagítar / Hljómborð: Atli Geir
Trommur: Rafn Jónsson
Bassi: Magnús Einarsson
Rafmagnsgítar: Stefán Hjörleifsson
Strengir: Sigurður Rúnar Jónsson
Kór: Ólafur Skúli Indriðason, Oddgeir Eysteinsson, Ólafur Ástgeirsson, Guðjón Karl Reynisson og Atli Geir -
Á þessum árum hlustaði ég mikið á skosku hljómsveitina Runrig sem spilaði þjóðlagarokk og var gríðarlega vinsæl í heimalandinu. Þeir sungu mikið á gelísku og voru upprunalega frá eyjunni Skye. Með þeim heyrði ég í fyrsta sinn skoska þjóðlagið Lock Lomond og hér er það flutt með íslenskum texta.
- Atli Geir